Fara beint í efni
Fellaverk

Endurbætur

Granaskjól

Staðsetning
Vesturbær Reykjavíkur
Flokkur
Endurbætur
Ár
2026

Uppgerð á bílskúr og breytt í íbúð

Um er að ræða bílskúr sem var að hluta til íbuð og svo geymsla á móti og þar var óskað eftir að skipta um þakplötur sem voru farnar að sýna rakaskemmdir og farnar að síga. Þá var faríð í málið að rannsaka hversu slæmt tjónið væri og þá kom í ljós stuttu seinna eftir að lofta panill var fjarlægður og skorið var á rakasperruna að það voru allir burðarbitar voru algjörlega búnir að rotna í gegn og allt þakið var að síga og var hreint alveg að fara hrynja.

Þá var tekin ákvörðun að algerleg endurbygging væri málið og þá var farið að plana næstu skref, þakið var fjarlægt og endursmíðað allt í heild sinni, gólfefni var ónýtt og fjarlægt og svo jafnað með floti. Þak var báruklætt með álbáru með innbrenndum lit og þakkanntur eins smíðaður úr sama lit með al flasningum og svo var klætt undir þakkannt með plast pallaefni snyrtilega þar sem engin skrúfugöt sjást.

Lofthæð hækkaði mikið eftir að nýtt þak var smíðað.

Veggir að innan klæddir með tvöföldu gipsi og osb plötum bakvið fyrir skrúfuhald fyrir innréttingar og fleira.

Rúmgott baðherbergi smíðað með innbyggðum klósettkassa og gólf flísalagt

Gegnheilir viðarplankar límdir niður sem gólfefni

Bílskúrshurð breytt í stóran eldhúsglugga og glugga skipti á öðrum gluggum voru líka nauðsynleg.

Allar lagnir voru áður utaná liggjandi og þeim var komið fyrir inn í veggjum og eru nú ekki sýnilegar

Mjög fjölbreytt og skemmtilegt verkefni yfir höfuð.

Við höfum múrara, rafvirkja og pípara sem vinna með okkur svo ekkert er ómögulegt.

Smiður að störfum við timburgrind nýbyggingar

Hafðu samband

Ertu með svipað verkefni?

Segðu okkur frá verkefninu og við höfum samband.

Theódór Guðjónsson897 0778teddi@fellaverk.is